Námskrár

Stuðningsefni

Leita

Stuðningsefni

Námskráráherslur

Skipulag náms og kennslu

Námsmat og vitnisburður

Stuðningsefni og upplýsingar

Forsiða

SNKN - Leiðsögn, stuðningur, samtal | Haust 2026

SNKN - Leiðsögn, stuðningur, samtal | Haust 2026

Haustið 2026 bjóða sérfræðingar í aðalnámskrá hjá MMS upp á leiðsögn og stuðning við innleiðingu vinnubragða í anda stuðningsefnis um skipulag náms, kennslu og námsmats (SNKN) á adalnamskra.is. Dagskráin sem verður í boði:

Kynningarfundir, 11. og 12. ágúst, um leiðsögn um SNKN haustið 2026

Fyrir hverja: Skólastjórnendur og starfsfólk fræðsluskrifstofa sveitarfélaga.

Efni kynninga: Innlit í áhersluþætti og tímalínu leiðsagnar um stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats (SNKN) á vef aðalnámskrár. Upplýsingar og umræða um markmið leiðsagnar, umsóknarferli, mikilvægi þarfagreiningar og innleiðingarteymis skóla.

Tímasetning kynninga: Val er um tvær tímasetningar á kynningum en efni þeirra verður það sama. Fundirnir verða rafrænir.

  • 11. ágúst kl. 11-12. Hlekkur Teams fund.
  • 12. ágúst kl. 14-15. Hlekkur Teams fund.
Umsóknarferli fyrir leiðsögn um SNKN með sérfræðingum í aðalnámskrá hjá MMS

Fyrir hverja:

  1. Sveitarfélög, sem geta sótt um þátttöku fyrir alla sína grunnskóla. Skólaskrifstofa ber ábyrgð á að innleiðingateymi SNKN séu mynduð í öllum þátttökuskólum.
  2. Grunnskóla, sem geta sótt um þátttöku fyrir innleiðingateymi SNKN í skólanum.

Markmið leiðsagnar: Að teymi þátttökuskóla fái góða og haldbæra innsýn í stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats á vef aðalnámskrár og hvernig það getur stutt skóla á þeirri vegferð að auka gæði kennslu, náms og námsmats.

Tímasetning leiðsagnar: Vikulegir fundir á þriðjudögum frá 15. sept.– 24. nóv. kl. 14.15-15.45 (að undanskildum 29. sept. og 20. og 27. okt.), samtals 8 fundir. Milli funda lesa þátttakendur stuðningsefni á vef aðalnámskrár.

Skilyrði fyrir þátttöku: Umsækjendur þurfa að greina stöðuna í eigin skóla (eyðublaðið Þarfagreining vegna SNKN og starfsþróunar á vefnum adalnamskra.is) og líta á verkefnið sem starfsþróunarverkefni til lengri tíma. Hver skóli setur saman sitt innleiðingarteymi sem verður leiðandi í innleiðingu SNKN í skólanum á næstu misserum og árum. Teymið mætir á fundi í leiðsögninni og heldur utan um skipulag innleiðingar SNKN í sínum skóla. Hvert teymi skipar einn tengilið við MMS sem heldur utan um samskipti og boðun funda.

Umsóknarferli: Opið verður fyrir umsóknir frá 11. til 27. ágúst 2026Hlekkur á umsóknarform.

Opnir netfundir um SNKN

Fyrir hverja: Fundirnir nýtast vel innleiðingarteymum skóla sem lokið hafa leiðsögn um SNKN, til upprifjunar, ígrundunar og samtals við sérfræðinga hjá MMS.

Fundirnir nýtast jafnframt þeim sem vilja kynna sér og fá innsýn í áhersluþætti SNKN. Opnir fundir geta verið gott skref í aðdraganda ákvörðunar um að sækja um þátttöku fyrir innleiðingarteymi skólans í leiðsögn um SNKN.

Tímasetning opinna funda: Vikulegir fundir alla miðvikudaga frá 2. sept.– 14. okt. (að undanskildum 30. september) kl. 14:15-15:15. Fundirnir eru rafrænir. Ekki eru gerðar upptökur af þessum fundum.

Skilyrði fyrir þátttöku: Allir eru velkomnir á opna fundi.

Fundarboð: Hægt er að óska eftir fundarboði hér á alla fundarröðina sem berst þá í dagatal viðkomandi.

Dagskrá opinna funda og tenglar á fundi: Mun birtast hér.

2. september

9. september

16. september

23. september

7. október

14. október

 

Samtal við sérfræðinga í aðalnámskrá grunnskóla hjá MMS um innleiðingu SNKN.

Fyrir hverja: Samtal um SNKN er eingöngu í boði fyrir innleiðingarteymi skóla sem hafa farið í gegnum leiðsögn um SNKN með sérfræðingum MMS. Fulltrúar innleiðingateymis mæta með þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir á fundinn og sérfræðingar MMS ræða mögulegar lausnir. Hvert samtal er allt að 40 mínútur.

Tímasetningar viðtalstíma sem eru í boði haustið 2026:

  • 7. september 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 21. september 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 5. október 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 19. október 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 2. nóvember 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 16. nóvember 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20
  • 30. nóvember 2026 | Tími: 13:00-13:40, 13:50-14:30, 14:40-15:20

Óskað er eftir samtali með því að senda tölvupóst á audurb@midstodmenntunar.is og brynhildur@midstodmenntunar.is.

Í beiðninni komi fram:

  • Titill tölvupósts: Beiðni um samtal um SNKN.
  • Nafn skóla:
  • Tengiliður: Nafn og netfang.
  • Ósk 1 um dagsetningu og tímasetningu fundar.
  • Ósk 2 um dagsetningu og tímasetningu fundar (til vara).
  • Áskorun skólans snýr að: (Hámark 50 orð)

Fundarboð mun berast tengiliði.