Námskráráherslur
Skipulag náms og kennslu
Námsmat og vitnisburður
Stuðningsefni og upplýsingar
Forsiða
Rafrænt námskeið - SNKNSkipulag náms, kennslu og námsmats í hæfnimiðuðu skólastarfi
Tengill á upphafssíðu námskeiðs
Í þessu námskeiði er farið yfir stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats sem birt er á vefnum adalnamskra.is. Námskeiðinu er ætlað að styðja við starfsþróun kennara og skólastjórnenda og ígrundun þeirra um skipulag og framkvæmd gæðakennslu. Fjallað er um hugmyndafræðina um hæfnimiðað skólastarf og lykilhugtök eru útskýrð. Leiðbeiningar eru gefnar um þá umgjörð um störf kennara sem skólar þurfa að setja í skólanámskrá og að lokum er skipulagi náms, kennslu og námsmats í þremur skrefum lýst á ítarlegan hátt og með tilvísunum í dæmi og hagnýt fylgiskjöl sem nálgast má á vef aðalnámskrár.
Námskeiðið er í þremur hlutum sem skiptast í 15 kennslustundir. Í hverri kennslustund er stutt myndband sem dregur fram aðalatriði úr stuðningsefninu og vísað er til samsvarandi texta á vef aðalnámskrár. Í kjölfarið eru birtar stuttar spurningar úr efninu, ígrundunarspurningar og tillögur að starfsþróunarverkefnum.
Efnisyfirlit námskeiðsins:
Fyrsti hluti – Námskráráherslur – Stefnumótun stjórnvalda
Annar hluti – Umgjörð og stefna skóla um nám, kennslu og námsmat – Skólanámskrá
Þriðji hluti – Skipulag náms, kennslu og námsmats