Námskráráherslur
Skipulag náms og kennslu
Námsmat og vitnisburður
Stuðningsefni og upplýsingar
Forsiða
Skjöl og skapalónSkólar og kennarar nota margvísleg skjöl til að halda utan um skipulag starfs og birta upplýsingar til nemenda og foreldra. Þessi skjöl eru ýmist stafræn eða handskrifuð, stundum sett upp innan námsumsjónarkerfa, stundum í ritvinnsluskrám eða töflureiknum samkvæmt skapalónum sem þróuð hafa verið í skólanum.
Hér á síðunni má sækja skapalón sem styðja við þrjú skref í skipulagi náms, kennslu og námsmats. Skjölin eru opin og kennarar geta aðlagað þau að vild.
Mennta- og barnamálaráðuneytið gefur út leiðbeinandi vægi flokka námsgreina vegna vitnisburðar við lok 10. bekkjar skólaárið 2026-2027.
Leiðbeinandi vægi er aðgengilegt í skjali hér:
-Skjal síðast uppfært 7. október 2026.
Skjal með forskráðum hæfniviðmiðum og matsviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla, sem skóli getur notað til að hafa yfirsýn um hvernig áherslur skiptast milli árganga og hvert vægi flokka hvers greinasviðs er í vitnisburði. Inn í skjalið er hægt að skrá stöðu hæfniviðmiða í hverjum árgangi og vægi flokka í vitnisburði. Skjalið er forritað þannig að samantekt á vægi flokka í 4., 7. og 10. bekk í hverri námsgrein birtist í flipa 2 „Samantekt á vægi flokka“.
-Skjal síðast uppfært 26. ágúst 2026.
Excel skjal til þess að halda utan um einkunnir gefnar fyrir flokk námsgreina á námstímabilum. Í skjalið skráist einnig vægi flokka í vitnisburði.
-Skjal síðast uppfært 25. ágúst 2026.
Sniðmátið hentar kennurum sem skipuleggja námstímabil út frá hæfniviðmiðum og setja ólík námsmarkmið til að mæta ólíkum þörfum nemenda. Skjalið gefur skýrt yfirlit um tengsl hæfniviðmiða, námsmarkmiða og matsviðmiða á hverju námstímabili og hægt er að vísa á námsefni og verkefnalýsingar með hlekkjum.
-Skjal síðast uppfært í ágúst 2026.
Væntanlegt.
Word skjal með leiðbeiningum um uppsetningu námsáætlana sem birta á til nemenda og foreldra fyrir hvert námstímabil. Dæmi um útfyllta námsáætlun.
-Skjal síðast uppfært 1. september 2026.
Word skjal með dæmi um skipulagsramma kennara fyrir eina kennslustund.
Word skjal sem samsvarar þremur skrefum í skipulagningu náms, kennslu og námsmats. Hentugt að nýta við starfsþróun, á meðan kennarar og/eða kennaranemar eru að læra að skipuleggja á grunni hæfniviðmiða og með setningu námsmarkmiða.