Námskráráherslur
Skipulag náms og kennslu
Námsmat og vitnisburður
Stuðningsefni og upplýsingar
Forsiða
Íslenska sem annað tungumálÍ viðmiðunarstundatöflu eru metnar námsþarfir nemenda með íslensku sem annað tungumál í ýmsum námsgreinum út frá hæfnistigi í íslensku og aldri. Meta verður hvern einstakling sérstaklega, hér er einungis um leiðbeinandi viðmið að ræða. Meta þarf hvort nemendur þurfi aðlagaðar námsáætlanir í ákveðnum námsgreinum. Áætlanir í bóklegum námsgreinum skulu aðlagaðar út frá settum hæfni- og matsviðmiðum námsgreinanna þannig að nemendur geti náð þeirri færni og þekkingu sem stefnt er að. Nemendur koma til landsins með þekkingu í ýmsum námsgreinum og þurfa að eiga þess kost að nýta námsefni á eigin tungumáli ef hægt er en jafnhliða skal gefa þeim kost á að auka íslenskan orðaforða sinn og skilning á viðfangsefni námsgreina á íslensku, með hjálp stoðgagna, s.s.einfaldari texta, mynda, myndskeiða og fjölbreyttri orðaforðavinnu.

Í fylgiritinu Hæfnisvið og hæfnirammar í íslensku sem öðru tungumáli er að finna ítarlegri hæfniramma en þá sem eru í námskrárkaflanum auk þess sem fjallað er nánar um hvert hæfnisvið tungumálanámsins. Því er ætlað að gefa nokkuð ítarlega lýsingu á því sem tungumálanám snýst um og styðja þannig við faglegt starf með nemendum.
Veggspjöld með hæfnirömmum úr kafla 19.5 Hæfniviðmið fyrir íslensku sem annað tungumál. Flokkunin er eftir hæfnistigum þ.e. frá forstigi – 3. stigs.