Námskrár

Stuðningsefni

Leita

Stuðningsefni

Námskráráherslur

Skipulag náms og kennslu

Námsmat og vitnisburður

Stuðningsefni og upplýsingar

Forsiða

Matstákn og vægi flokka | Stuðningur við innleiðingu

Matstákn og vægi flokka | Stuðningur við innleiðingu

7. ágúst 2026 tilkynnti ráðherra mennta- og barnamálaráðherra ákvörðun um innleiðingu tölustafa í stað í bókstafa. Tilkynninguna má lesa hér.

Gögn til innleiðingar fyrir innleiðingarteymi skóla og skólastjórnendur

Hér eru aðgengilegar glærur og önnur gögn frá fundum með innleiðingarteymum skóla.

Fyrirvari: Efni þetta er enn í vinnslu og þróun og getur tekið breytingum.

Vika 1 | 25. og 26. ágúst 2026 | Einkunnagjöf með tölukvarða og að setja vægi við flokka námsgreina er ekki einangraður hluti af skólastarfi. Þessir þættir falla inn í allt skipulag náms, kennslu og námsmats. Á þessum fyrsta fundi er teiknuð upp heildarmynd af skipulagi náms, kennslu og námsmats þar sem nýr matskvarði og vægi flokka er fléttað inn í þá mynd.

Vika 2 | 1. og 2. september 2026 | Í þessari viku er áhersla á umgjörð skóla um nám, kennslu og námsmat. Í því samhengi er fjallað um námstímabil, vægi flokka og forgangsröðun hæfniviðmiða, einkunnamynd nemenda, hvað býr að baki henni, mikilvægi námsáætlana í tengslum við einkunnamynd og birtingu einkunnamyndar.

Vika 3 | 8. og 9. september 2026 | Í þessari viku er áhersla mikilvæga umfjöllun um og sameiginlegan skilning á nokkrum lykilhugtökum þ.e. leiðsagnarmat, leiðsagnarnám, lokamat, vitisburður, skólanámskrá, kennsluáætlun, námsáætlun og einstaklingsnámskrá. Aðal áherslan á fundi 3 er á vægi flokka námsgreina í samhengi við vitnisburð við lok skólastigsa með áherslu á 10. bekk.

Kynningarefni fyrir skólastjórnendur um vægi flokka og talnakvarða. Lagt fram í upphafi skólaárs 2026. Efnið er sett fram í tveimur skjölum en mjög mikilvægt er að skólastjórnandi noti þau saman.

Ábendingum og vangaveltum er safnað í FORM HÉR. 

Skráningaform fyrir teymi skóla og fulltrúa sveitarfélaga.

Hér er aðgengilegt form til þess að skrá innleiðingarteymi skóla og fulltrúa sveitarfélaga vegna innleiðingar á matstáknum og vægi flokka námsgreina en skráningu þarf að vera lokið 19. ágúst 2026.

Skráningarform.

Hlutverk innleiðingarteyma er m.a. að:

a) sækja innleiðingar og upplýsingafundi sem MMS mun halda utan um.

b) miðla leiðbeiningum frá innleiðingafundum, setja saman áætlun um innleiðingu og fara fyrir henni í sínum skóla og styðja við kennara skólans í innleiðingarferlinu.

Innleiðingafundir | Ágúst til október 2026

Innleiðingafundir | Ágúst til október

Fundirnir eru eingöngu fyrir skráð innleiðingarteymi skóla og skráða fulltrúa sveitarfélaga. Fundarboð verða send út 21. ágúst á tengiliði innleiðingarteyma sem svo áframsenda á aðra fulltrúa í innleiðingarteymisins.

Tímabil:

  • 24. ágúst – 4. september | Matstákn og vægi flokka – Áhersluþættir
  • 7.-24. september | Umgjörð náms, kennslu og námsmats, matstákn og vægi
  • 5.-15. október | Innleiðing, samtal um stöðuna, könnun um framhaldið

Val um fundartíma  | Sama dagskrá á öllum fundum

Tengill á fundi er aðgengilegur hjá tengiliði innleiðingarteymis skólans.

  • Þriðjudagar kl. 15:15-16:15
    • 29. september er enginn fundur.
  • Miðvikudagar kl. 10:15-11:15
  • Miðvikudagar kl. 14:15-15:15
    • 30. september er enginn fundur.

Form fyrir ábendingar og vangaveltur

Hér er aðgengilegt form sem tekur við ábendingum og vangaveltum skólafólks varðandi vægi flokka og talnakvarða.

Ábendingar og vangaveltur verða teknar fyrir á stuðningsfundum við innleiðingu.

Ábendingum og vangaveltum er safnað í FORM HÉR.

Spurt og svarað | Matstákn og vægi flokka

Hér eru aðgengilegar algengar spurningar og svör vegna matstákna og vægis flokka.

Talnakvarði
Hvers vegna að breyta matskvarða aðalnámskrár grunnskóla, frá bókstafskvarða í talnakvarða?

Tilgangur breytinganna er að gera námsmat skýrara, samræmdara og auðskiljanlegra fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagiðSkýrara námsmat er liður í sókn ríkisstjórnar í menntamálum og er ætlað að gera skólakerfið gagnsærra, styðja betur við nemendur og auðvelda foreldrum að fylgjast með námi barna sinna 

Hvenær tekur talnakvarðinn gildi?

Áfangi 1: Gildistaka vorið 2027, þegar vitnisburður við lok 10. bekkjar verður birtur með talnakvarða, heilum tölum á bilinu 1-10. Samhliða nýjum matskvarða fyrir vitnisburð við lok 10. bekkjar þurfa skólar að birta í skólanámskrá vægi flokka hæfniviðmiða fyrir hvert greinasvið árgangsins. 

Áfangi 2: Gildistaka vorið 2028, þegar vitnisburður við lok 4. og 7. bekkjar verður einnig birtur með talnakvarða, heilum tölum á bilinu 1-10. Samhliða nýjum matskvarða fyrir vitnisburð við lok 4. og 7. bekkjar þurfa skólar að birta vægi flokka fyrir hvert greinasvið árgangsins. 

Verða gerðar breytingar á aðalnámskrá grunnskóla vegna talnakvarðans?

Námsmatskaflar núgildandi aðalnámskrár grunnskóla verða endurskoðaðir og  útgáfa birfyrir lok árs 2026. Þegar drög að breytingum á aðalnámskrá liggja fyrir verða þau kynnt og samráð átt við helstu hagaðila.

Mun breyting á matskvarða hafa áhrif á námsmat í grunnskólum?

Breytingin snýr að birtingu upplýsinga um árangur nemenda í lokamati og lýsingu á stöðu þeirra í vitnisburðiBreytingin dregur ekki úr faglegu hlutverki kennara við nám, kennslu og námsmat né áherslu á mikilvægi fjölbreyttra matsaðferða í skólastarfi líkt og gildandi aðalnámskrá kveður á um. Breytingin snýst þannig um hvernig niðurstöður námsmats eru settar fram og birtar.   

Aðalnámskrá grunnskóla leggur áfram megin áherslu á leiðbeinandi hlutverk námsmats og að kennarar skipuleggi nám og kennslu með aðferðum leiðsagnarnáms eða leiðsagnarmats. Matstákn þ.e. tölurnar, á ekki að nota í leiðsagnarnámi heldur felst leiðsagnarnám í samtali nemenda og kennara um stöðu hvers og eins miðað við sett námsmarkmið.

Mun breyting á matskvarða hafa áhrif á skipulag náms og kennslu í grunnskólum?

Breyting á matskvarða aðalnámskrár grunnskóla, frá bókstafskvarða í talnakvarða mun ekki hafa áhrif á skipulag náms og kennslu.  Breytingin varðar birtingu upplýsinga um árangur nemenda annars vegar þegar vitnisburður er gefinn við lok árgangs eða aldursstigs og hins vegar þegar lokaeinkunn við lok námstímabils er gefin.

Í hverju felst skýrara, samræmdara og skiljanlegra námsmat eftir breytingu á matskvarða aðalnámskrár grunnskóla frá bókstafskvarða í talnakvarða?

Í innleiðingarferlinu verður lögð áhersla á að veita skólasamfélaginu samræmverkfæri sem tala inn í skipulag gæða náms, kennslu og námsmats. Áhersla verður á vinnubrögð sem endurspegla skýrara verklag við skipulag, framkvæmd og birtingu alls námsmats þ.e. lokamats og vitnisburðar

Hvenær er skólum ætlað að nota talnakvarða við einkunnagjöf?

Skólaárið 2026-2027 | Innleiðing talnakvarða í vitnisburði nemenda við lok 10. bekkjar  og að skólar setji vægi á flokka námsgreina samkvæmt leiðbeinandi útgefnu vægi Mennta og barnamálaráðuneytis sem birt er í stuðningsefni á adalnamskra.is, í skjalinu Forgangsröðun hæfniviðmiða og vægi flokka.

Vorið 2027 verður skólum skylt að nýta talnakvarða í vitnisburði nemenda við lok 10. bekkjar. Samhliða eiga skólar að gera skýra grein fyrir hvert vægi ólíkra flokka hvers greinasviðs er við vinnslu vitnisburðar 

Yfir skólaárið eru skólar hvattir til að nýta talnakvarðann við einkunnagjöf á unglingastigi vegna lokamats námstímabila.  

Skólaárið 2027-2028 | Áhersla á innleiðingu talnakvarðans á öllum skólastigum í lokamati og vitnisburði og vægi flokka. 

Vorið 2028 verður skólum skylt að birta vitnisburð nemenda við lok 4., 7. og 10. bekkjar með talnakvarða. Matskvarðann ber einnig að nota í öllum árgöngum sem skólar velja að gefa vitnisburð. Skylt verður að skilgreina vægi flokka á hverju greinasviði fyrir 4., 7. og 10. bekk þegar skylt er að gefa vitnisburði.   

Vægi flokka námsgreina
Hvers vegna að setja vægi á flokka greinasviða?

Markmiðið ráðuneytis um skilgreiningu skóla á vægi flokka greinasviða er til að tryggja skýrari og gagnsærri mynd af stöðu nemenda og að námsmat verði sambærilegra milli skóla en áður var. 

Hvað er átt við með flokki greinasviðs?

Á hverju greinasviði er hæfniviðmiðum skipt í flokka. Þegar flokkum greinasviðs er gefið vægi á skýran hátt styður það kennara við skipulag náms, kennslu og námsmats og aveldara verður að tryggja samræmd vinnubrögð við vinnslu vitnisburðar.

Hver er tilgangur með að hver skóli skrái vægi á flokka allra námsgreina?

Með því að skilgreina vægi flokka hvers greinasviðs setur skóli fram lýsingu á því hvað býr að baki þeirri tölu sem lýsir hæfni nemanda í vitnisburði við lok skólaársÓlíkt vægi flokkanna getur haft afgerandi áhrif á þá niðurstöðu sem skráð er í vitnisburð nemenda. Sem dæmi má nefna að algengt er að lokaeinkunn í íslensku sé dregin saman á þann hátt að meira vægi er lagt á matsviðmið tengd lestri, lesskilningi og ritun og þá er minna vægi sett á aðra flokka svo sem talað mál, hlustun og áhorf, bókmenntir og málnotkun. Ákvarðanir um ólíkt vægi flokka verða að liggja skýrt fyrir áður en kennsla hefst þannig að hægt sé að upplýsa nemendur samhliða námi og kennslu og áður en vitnisburður er unninn. 

Ber hver skóli ábyrgð á ákvörðun um vægi flokka hverrar námsgreinar?

Hver skóli skilgreinir vægi hvers flokks á hverju greinasviði og birtir á skýran hátt í skólanámskrá, t.d. samhliða forgangsröðun hæfniviðmiða. Ákvarðanir um vægi flokka í vitnisburði þurfa að byggja á faglegum forsendum og vera í samræmi við stefnu og áherslur skólans. Við ákvörðun vægis geta skólar nýtt til hliðsjónar leiðbeinandi vægi flokka námsgreina, sem er aðgengilegt HÉR. Skráð vægi er sett fram í þessu skjali sem drög til að hefja umræðusamsetningu lokaeinkunna. 

Hvers vegna ber skólum að skila inn til ráðuneytis ákvörðun sinni um vægi flokka?

Þannig fær ráðuneyti betri yfirsýn um hvernig skólar skilgreina vægi flokka innan greinasviða og þannig afla gagna sem nýtast til að fylgjast með hvort fullnægjandi samræmi sé milli kennslu og námsmats í grunnskólum landsins. 

Stuðningur við innleiðingu talnakvarða og vægi flokka námsgreina
Hver mun halda utan um innleiðingu á talnakvarða og vægi flokka námsgreina?

Mennta- og barnamálaráðuneyti  ákveður allar breytingar á aðalnámskrá grunnskóla en hefur þegar falið Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að styðja skólasamfélagið við innleiðingu talnakvarða og að setja vægi á flokka námsgreina.  

 

Hver mun upplýsa nemendur og foreldra um nýjan matskvarða og vægi flokka?

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnti breytingarnar í byrjun ágúst 2026  en skólar þurfa síðaað upplýsa nemendur og foreldra um nýjan matskvarða og vægi flokka á hverju greinasviði. Skýringarefni verður aðgengilegt á vefnum adalnamskra.is – Stuðningsefni en skólastjórnendur og kennarar eru lykilaðilar þegar kemur að því að skapa sameiginlegan skilning innan skólasamfélagsins á nýjum matskvarða. 

Hver er tímalína innleiðingar?

Mennta- og barnamálaráðuneyti miðar við að talnakvarði verði tekinn í notkun í tveimur áföngum: 

Áfangi 1: Skólaárið 2026-2027 | Áhersla á innleiðingu talnakvarða við vitnisburð við lok 10. bekkjar og vægi flokka námsgreina í 10. bekk. 

Áhersla verður á innleiðingu, stuðning og leiðsögn fyrir skólastjórnendur og kennara 10. bekkjar þar sem að vorið 2027 ber þeim að nýta talnakvarða við vitnisburð nemenda og útskrift þeirra ásamt því að birta vægi flokka námsgreina í 10. bekk. 

Áfangi 2: Skólaárið 2027-2028 | Áhersla á innleiðingu talnakvarðans á öllum skólastigum í lokamati og vitnisburði og vægi flokka námsgreina.  

Innleiðing, stuðningur og leiðsögn verður aðgengileg fyrir alla grunnskóla.  

Við lok skólaársins þ.e. vorið 2028, ber skólum að nýta talnakvarða aðalnámskrár grunnskóla við vitnisburð við lok allra aldursstiga þ.e. 4., 7. og 10. bekkjar og einnig ber að nota alltaf talnakvarðann þegar einkunnir eru gefnar í lokamati (ekki önnur matstákn). Á skólaárinu ber skólum að hafa skilgreint vægi flokka á hverju greinasviði á öllum aldursstigunum. 

Almennt er varðar áfanga 1 
Verða hæfniviðmið enn í gildi eftir innleiðingu talnakvarða og flokkun greinasviða?

Í tengslum við innleiðingu nýs talnakvarða og vægis flokka námsgreina verða engar breytingar gerðar á hæfniviðmiðum greinasviða aðalnámskrár grunnskóla.

Verða námsmarkmið uppfærð eftir innleiðingu talnakvarða og vægis flokka greinasviða?

Í tengslum við innleiðingu nýs talnakvarða og vægis flokka námsgreina verða engar breytingar gerðar á dæmum um námsmarkmið sem birt eru bakvið öll hæfniviðmið greinasviða aðalnámskrár grunnskóla.