Námskrár

Stuðningsefni

Leita

Curriculum icon
Framhaldsskóli

Almennur hluti

Forsiða

Framhaldsskóli

Framhaldsskólaeining
Kafli 9

Framhaldsskólaeining

Öll vinna nemenda í framhaldsskóla skal metin í stöðluðum námseiningum og skal að baki hverri einingu liggja því sem næst jafnt vinnuframlag nemenda. Öll vinna nemenda í fullu námi veitir 60 framhaldsskólaeiningar (fein.) á einu skólaári eða 30 einingar á önn.

Ein framhaldsskólaeining samsvarar 18 til 24 klukkustunda vinnu meðalnemanda, það er að segja þriggja daga vinnu nemenda ef gert er ráð fyrir sex til átta klukkustunda vinnu að meðaltali á dag eftir eðli viðfangsefna og afkastagetu nemenda.

Við útreikning á fjölda framhaldsskólaeininga er tekið tillit til:

  • þátttöku nemenda í kennslustund óháð kennsluformi,
  • vinnustaðanáms undir umsjón tilsjónarmanns,
  • starfsþjálfunar á vinnustað eða í skóla,
  • þátttöku í námsmati, svo sem próftöku,
  • heimavinnu, verkefnavinnu og annarrar vinnu sem ætlast er til að nemandi sinni.