Almennur hluti
Markmið mats er að auka þekkingu leikskólakennara, barna, annars starfsfólks og foreldra á færni, námi og líðan barna. Upplýsingar matsins eru notaðar til að styðja við nám og vellíðan barna, við skipulagningu leikskólastarfsins í samstarfi við börn og foreldra. Matið á einnig að tryggja að jafnræði og réttindi barna séu virt. Mikilvægt er að mat byggist á þátttöku og samvinnu leikskólakennara, annars starfsfólks, barna og foreldra. Börn eiga, í samræmi við aldur og þroska, að taka þátt í að meta nám sitt, setja sér markmið og koma með tillögur að leiðum.
Upplýsingaöflun þarf að leiða til umbóta fyrir barnið og styðja við nám þess og vellíðan. Hver leikskóli á að byggja gagnasöfnun á fjölbreyttum aðferðum sem taka mið af mismunandi tjáningarmáta barna og móta vinnulag við að safna, skrá, skipuleggja og greina upplýsingar. Gera þarf grein fyrir vinnulagi hvers leikskóla í skólanámskrá og hafa það aðgengilegt þeim sem málið varðar og tengja það innra mati leikskólans eftir því sem við á.
Mat á leik, námi og velferð barna í leikskóla skal taka mið af áhuga, getu og hæfni þeirra. Mat á meðal annars að efla sjálfsmynd barns og trú þess á eigin getu, ásamt því að stuðla að jafnrétti til menntunar. Mat sem unnið er í samstarfi leikskóla, foreldra og barna, stuðlar að betri skilningi og innsýn í námsferli barna, áhuga þeirra og styrkleika. Upplýsingum er reglulega safnað á markvissan og fjölbreyttan hátt; um það sem börnin hafa áhuga á, hvað þau fást við og hvað þau geta, í þeim tilgangi að efla nám og vellíðan þeirra. Matsferli á að vera samþætt daglegu starfi leikskólans, byggjast á leik barna sem námsleið þeirra og endurspegla markmið leikskólastarfsins og skólanámskrá leikskólans.
Leikur er meginnámsleið barna í leikskóla og því þarf hver leikskóli að þróa matsaðferðir þar sem nám barna í leik er metið. Það geta verið skráningar af ýmsu tagi svo sem ljósmyndir, tilvikskráningar, frásagnir barna, hljóðupptökur, myndbandsupptökur og annað sem lýsir ferli leiks, hugmyndum, tilgátum, reynslu, líðan og þekkingu barna. Skráningarnar eru meðal annars nýttar til að þróa nám barna í leik.
Mat á námi og líðan barna er bæði einstaklingsmiðað og hópmiðað. Einstaklingsmiðað mat byggir á styrkleikum og færni hvers barns með það að leiðarljósi að efla það og styrkja. Hópmiðuðu mati er ætlað að styrkja barnahóp eða stöðu einstakra barna í hópnum. Þar þarf meðal annars að meta hvort leikskólastarfið endurspegli margbreytileika barnahópsins og samfélagsins. Skoða þarf hvernig aðgengi barna er að námsumhverfi sem styður við sjálfræði, færni, nám og vellíðan þeirra. Matið er fyrst og fremst umbótamiðað og úrbætur felast í því að aðlaga námsumhverfi og námsaðferðir að börnum, þannig að hæfileiki hvers og eins fái að njóta sín í leikskólastarfinu.
Í einstaklingsmiðuðu mati er lögð áhersla á;
Í hópmiðuðu mati er lögð áhersla á ;